Útvarp í beinni
Linda og Haffi fara til Orlando
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1746 dögum
10.01.2008 18:21:28 / Berglind

2008

Komiði blessuð og sæl á nýju ári!:) 2008 vá! trúiði því? soldið langt síðan ég bloggaði síðast en mér bara fannst ég þurfa að tjá mig á þessu nýja blessaða ári:)

 

Það sem er að frétta af mér er það að ég er orðin nemandi í HÍ í uppeldis og menntunarfræði, og mér gengur bara vel! ég náði öllum prófunum mínum og fékk bara þokkalegar einkunnir út úr þeim:)

Ein nýjung í mínu lífi er að ég á núna hund! og hún heitir Nadía og er algjör asni en algjört krútt:) Hún er blanda af labrador og Borde colly! flest ykkar vita þetta nú þegar þannig að ég ætla ekki að tala um þetta meira;)

O.K smá pæling í gangi! Hvað í a********* á það að þýða að ég get ekki horft á flaming AUGLÝSINGU og þá er ég farin að væla!! þetta er hræðilegt!! ég er bara orðin grenjandi auli og ég þarf að bíta á jaxlinn út af öllu! haha eins og margir vita að þá ELSKA´ég nágranna! mér finnst þeir bara æði! Og það vill svo ömurlega til að einn af uppáhalds karakterunum mínum var látin deyja fyrir nokkrum þáttum síðan, og síðan að það gerðist að þá hefur hver þáttur á eftir öðrum innihaldið eitthvað í sambandi við þennan karakter, einhverja minningu..sorglegt en fallegt! og mín bara byrjar að skæla og skæla lika there is NO TOMORROW!! Ég vil meina að þetta sé pillunni að kenna! jább! ég hef nú alltaf verið viðkvæm en þetta er orðið asnalegt!!8| Ég þarf bara að vera með tissjú rúlluna til að geta horft á uppáhalds sápu óperuna mína! WHAT IS THE DEAL??? við erum ekki að tala um eitt og eitt tár, við erum að tala um GRENJ!!!!!!!!!!!!!!! alveg hreint óþolandi! :$

Hvað er svo planið næsta sumar? Ég er að spöglera ða skella mér til U.S. and A (Borat style) og fara að vinna í sumarbúðum:) Ég held að það gæti orðið mjööög gaman:) mundi skemmta mér með Hrefnu frænku! vííí ég er bara spennt! algjör stuð:)

 

Heyrðu ég ætla út með voffa:) bæjó

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 12:13:25 / Berglind

Spánarferðin og síðasta vikan

Sælt veri fólkið!

Ég afsaka að ég er ekki búin að skrifa neitt hérna í að verða 3 vikur! þetta er hneiksli!

Ég var úti á spáni með skólanum, eins og þið eflaust vitið flest öll:) Þetta var rooooosalegt stuð! frábær ferð með yndislegu fólki:) Við lenntum á spáni um miðnætti 14. maí. og þa tók við 12 tíma keyrsla til lítils fjallaþorps að nafninu El Chorro, í andalúsíu.

Þetta var án efa einn af fallegustu stöðum sem ég hef verið á! Við vorum ein upp í miðri fjallshlíð inní fjallsgarði, á stórkostlegu hóteli, með okkar eigin sundlaug og allt:) Draumur í dollu:) Þarna í grenndinni fórum við í fjallaklifur (sem var hrikalega spennandi og skemmtilegt:) ) og svo fórum við ofaní neðanjarðar helli þar sem að við þurftum láta okkur síga niður um lítið op! Eftirfarandi er setning sem heyrðist oft koma frá mínum munni : I WANT MY MOMMY!!!!! Í gegnum hellinn tautaði ég og nöldraði og bölvaði þessum fjandans þrengslum þarna niðri sem voru að drepa á mér bakið! Ein spurning sem kom oft frá mér og einum kennara minna: Hvar er fjandans barin hérna niðri!!;) Já við vorum ekki sáttar!

Þetta var samt rosalega gaman þarna niðri, þótt maður var drulluhræddur, stundum var ekkert til að stíga á og maður þurfti bókstaflega að reyna að gripa í stein og hífa sig upp á honum án reipis! Og fyrir lífshrædda manneskju eins og mig að þá var þetta ekki gaman á meðan á þessu stóð! en eftir á var þetta hrikalega töff!;)

Eftir þessa ferð var förinni heitið til Marbella á spáni, sem er á Costa Del Sol:) Þar komumst við á ströndina og áttum þar góðar stundir í 2 daga:)

Ég nenni ekki að fara út í smáatriði, en ég held að myndirnar segi sem flest, ég set myndirnar inn eftir nokkra daga:)

Svo er það síðasta vikan á skólanum... úff! hún var erfið:( Ég grenjaði og grenjaði alla vikuna því sem næst:( Þurfti að kveðja fólk eitt í einu, en samt stæðsta partinn á laugardaginn síðastliðin. Vægast sagt hægt að segja að þetta hafi verið rosalega erfið, en skemmtileg vika. Við nýttum hverja stund saman þarna á skólanum:)

Svona í endan langar mig að segja að ég gleymi þessu aldrei! Þetta voru bestu 6 mánuðir lífs míns og ég tek svo mikið frá þessari reynslu! Ég hef þroskast og fullorðnast, orðin sjálfstæðari, hamingjusamari og eignaðist 50 ný systkini! Ég gleymi þessu fólki aldrei:)

 

Kveðja, Ungfrú Berglind


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 15:46:15 / Berglind

Á spáni er gott að djamma og djúsa, diskótekunum á!;)

Góðan daginn! Ég hef ekki mikið að segja eins og stendur:) En ég er á leiðinni til spánar á morgun!!! úúúújeeee ;) VERY NICE! I LIKE;)

Hérna er smá snilldar listi yfir 26 hluti sem strákar eiga að nota á stelpur þegar þeir vilja sína ástúð sína!! bara fyndið! og ég held að það sé alveg með fullri vissu hægt að staðhæfa að sá aðili sem að bjó til þennan skemmtilega lista hafi aldrei farið á deit nokkurn tíman!!!! hahahaha

1. when she asks how she looks shrug and say "could be better" this will keep her on her toes. and girls love that.

2. never hold her hand. this can be interpreted as a sign of weakness. (or if she grabs your hand squeeze hers really really hard until she cries. this will impress her by showing her what a strong man you are.)

3. once a month sneak up on her from behind and knock her over. girls are like dogs. they love to be roughed up.

4. call her in the middle of the night to ask if she's sleeping. if she is say you better be , repeat this 4 or 5 times until morning. this will show her you care.

 5. when she is upset about something, suggest to her that it might be her fault. this will pave the way for her own personal improvement. and every girl needs some improvement.

6. recognize the small things . . . they usually mean the most. then when she's sleeping, steal all her small things and break them. because jewelry is for pussies and asian ladies.

7. if youre talking to another girl, make sure shes looking. When she is, stare into her eyes mouth the words fuck you and grab the other girls ass. Girls love competition.

8. tell her you're taking her out to dinner. drive for miles so she thinks it's going to be really special. then take her to a burning tire yard. when she starts to get upset tell her you were just kidding and now you're really going to take her to dinner. then drive her home. when she starts crying and asks why you would do something like that lean over and whisper very quietly into her ear "...because i can."

9. introduce her to your friends as "some chick". women love those special nicknames.

10. play with her hair. play with it HARD.

11. warm her up when shes cold...and not by giving her your jacket... then you might get cold. rather, look her in the eye and say "if you don't stop bitching about the cold right now you're going to be bitching about a black eye." the best way to get warm is with fear.

12. Take her to a party. When you get there shell have to go to the bathroom (they always do). Leave immediately. Come back right when the partys dying and yell at her the whole way home for ditching you at the party.

13. make her laugh. a good way to do this is if she has a small pet. kick the pet. i always find stuff like that funny. why shouldn't girls?

14. let her fall asleep in your arms. when she's fast asleep, wait 10 minutes then JUMP UP AND SCREAM IN HER EAR! repeat until she goes home and you can use your arms for more important things. like basketball.

15. Spit often. I hear girls like guys that spit.

16. if you care about her never ever tell her. this will only give her self confidence. then you can never turn her into the object she deep down desires to be.

17. Every time youre in her house steal one of the following: shoes, earrings, or anything else that comes in pairs. Only take one of the pair. This way shell go crazy.

18. Take her out to dinner. Right when shes about to order interrupt and say no shes not hungry. make her watch you eat. Girls love a guy that speaks for her.

19. look her in the eyes and smile. then clock her one. girls love a spontaneous guy.

20. give her one of your t-shirts......and make sure it has your smell on it. but not a sexy cologne smell. a bad smell. you know what i'm talking about.

21. When its raining keep asking her if shes crying. Shell say no its just the rain ten minutes later turn to her and just scream at her to stop crying you fuckin baby. Girls like a tough man as i've already stated.

22. Titty twisters and plenty of them.

23. if youre listening to music, and she asks to hear it, tell her no. this way she'll think you're mysterious.

24. remember her birthday but don't get her something. Teach her material objects arent important. The only thing thats important is that she keeps you happy. And your happiness is the greatest present she can ever get.

25. when she gives you a present on your birthday, christmas, or just when ever, take it and tell her you love it. then next time you know she's coming over on a trash day leave the trash can open and have the present visibly sticking out of the can. girls actually don't like this one that much but i think it's funny.

26. If shes mad at you for not calling her when you say you will promise her that you will call her at a certain time of the day. This will make sure that she waits by the phone. Tell her when you call youre going to tell her a special surprise. Now shell be really excited. Now dont call.

Love, snúlla

p.s. GUMMI ég er búin ad laga núna


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 21:44:27 / Linda

Home Sweet Home

Home Sweet Home
Linda og Haffi
Jæja, þá erum við búin að skella okkur eina helgi til Danmerkur ;) ekkert skemmtilegra en að kíkja í hitann og sólina og hvað þá að heimsækja Berglindi mína 8)
Fórum á föstudagsmorgni og lentum í Köben um hádegisbilið, ferðalagið ekki alveg búið... lest til Arhus í aðeins 3 og hálfan tima 8| lucky we að eiga ipod video ;) Geggjað hótel, skelltum okkur í góðan göngutúr að skoða umhverfið ;)
Á Laugardeginum fórum við á smá ráðstefnu og skelltum okkur til Berglindar ;) vúhúhúhúh loksins fær maður að knúsa hana! Töluðum heilmikið saman á meðan Halli og Haffi voru að veiða án árangurs :$ Hmm Halli veiddi samt heillt tré  :haha: toppið það???
Ekkert crazzzy djamm en maður kom samt ágætilega ölvaður á hótelið :haha: geggjað stuð!!
Sexy beast
ójé talandi um sexu gellur sko ;) mjáááá...
En já svo er það bara 6 dagar í Orlando
og
24 dagar í íbúðina....
Linda kveður 8)
MYNDIR KOMNAR HÉR TIL HLIÐAR

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 09:11:34 / Linda

Spennan í HÁMARKI (",)

Já það er sko ALLT að gerast skal ég segja ykkur ;)

  • Við erum að fara að skrifa undir kaupsamninginn á morgun 8) þvílík spenna þar!! tíhí
  • Á föstudagsmorgni förum við til KÖBEN :haha::haha: ójá verðum í Aarhus þessa helgi semsagt og auðvitað kíkir maður til Berglindar ;) Vá hvað ég hlakka til, sakna þín SVOOO mikið sæta!! Stórt knús ;)
  • Við förum út til Orlando eftir rúmlega viku ;) úfff það verður endalaust gaman!!!
  • 9 dögum eftir að við komum heim þá fáum við ÍBÚÐINA :D:D:D8)8):haha::haha:
  • HAMINGJA HAMINGJA

LINDA KVEÐUR


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 21:04:05 / Linda

Long Time No Seen

 

Góðan daginn, vá ég veit ekki hvenær ég bloggaði seinast!!! mjög langt síðan...

Ég fór út til Orlando að vinna með múttu og það var svaka stuð, saknaði Haffa mjög mikið en þetta bara styrkti sambandið ;) ekki verra ;) HÉR eru myndir úr ferðinni!

Haffi átti afmæli 27 mars og hann hélt smá grill og pottapartý ;) mjög fínt !! Gaf honum geggjaðan Ipod video 80gb ;)

Kalli litli brósi fermdist fyrir stuttu og vá eigum vð eitthvað að ræða peninginn sem krakakr eru að fá í dag, úfffff!!!

Aðalfréttirnar eru þær að við erum BÚIN að kaupa ÍBÚÐ í Grafarvoginum :haha::haha::haha: vá eigum við eitthvað að ræða hamingjuna eða? keyptum alveg æðislega flotta íbúð og fáum hana afhenta 1 júní ;) ójá þetta verður rugl sumar ;););)

Fórum út til Orlando í frí 14maí-23maí ;) þá ætlar Linda sko að fara í CRAZZZZY rússibana og skemmtileg heit ;)

Svo fer maður að telja niður þangað til Berglind kemur heim ;) váááá það verður æði, loksins kemur hun kem til Lindu sinnar ;) love you babe!!!

Þetta var það helsta sem ég man ;)

Skal reyna að blogga bráðlega aftur ;)

See ya8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 14:49:01 / Berglind

Ísland er land mitt :)

Ég sakna þess að vera heima á íslandi! ég sakna þess að vera með vinum mínum og hafa það notarlegt!

Ég sakna Lindu minnar! því hún er snillingur og alltaf gaman að vera með henni!:)

Ég sakna allra vina minna reyndar!! Yndislegt fólk sem ég get ekki beðið eftir að hitta aftur!

Mig langar svo að koma heim, en ég veit samt að um leið og ég er komin heim að þá á ég líka eftir að sakna vina minna hérna á skólanum, ég er sko búin að mynda nokkur vinasambönd sem munu endast að eilífu! fólk sem ég gleymi aldrei!! Og ég ætla að búa til svona HUGE scrap book þegar ég kem heim:) eitthvað til að dunda mér við á einmanna sumarnóttum ;) hehe

Svo er það bara spurning með háskólan, vil ég læra heima eða hérna? ég vil reyndar læra á báðum stöðum, en það er spurning hvernig ég tækla þetta:) Kemur í ljós!:D Ætli ég ákveði mig ekki þegar ég er búin að vera heima og koma mér fyrir aftur og svona:)

 En já, það sem er að frétta af mér er að ég er virkilega farin að sakna vinanna og allra heima:) Langar að knúsa mömmu og pabba og Lindu! Man hvað endurfundir minir Lindu voru rosalegir þegar ég kom heim í febrúar! ég stökk um hálsin á henni og fór að grenja haha, já er ég vælukjói!

tear

 


Annars er ég ennþá að skemmta mér vel hérna og hafa gaman með öllu fólkinu mínu:) Á mjög góða vini hérna, meira að segja ein ný vinkona sem ég tek með heim til Íslands! hehe já það er Guðrún Ýr! hún býr víst í Reykjavík líka:) En ef það er ekki algjör snillingur að þá veit ég ekki hvað!

Næstu helgi kemur annar skóli hingað til okkar á Snoghoj! Jeg gleder mig faktist;) Vonandi verða það einhverjir sætir strákar;) hehe og skemmtilegt fólk :D

Þau verða með okkur alla helgina að djamma og gera eitthvað skemmtilegt:!: :haha:

Í gær eyddi í mánudeginum í að fá nudd! við gellurnar vorum í nudd tíma að læra nudd og svona gaman! svo í dag fórum við til stað sem heitir aarstiderne! Ég keyrði um.þ.b klukkutíma keyrslu út á land með stelpurnar í bílnum! vá ég var stressuð! en þetta reddaðist;) við fundum réttu leiðina:D hehe

En svo næsta mánudag er ferðinni heitið á glerverkstæði:) Þar sem við fáum að búa til skartgripi og svona töff:) úúújee:)

En já ég skal setja síðan inn myndir frá partýi helgarinnar:) það mun heita innflutnings partý albúmið! aaight? ok bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 17:21:23 / Berglind

MYNDIR!

MYNDIR ERU KOMNAR!!!!!

 

3 ný albúm!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 21:54:11 / Berglind

Vampíra, súkkulaðibita ís og Strippari...

 

...er það sem ég, Guðrún og Camilla vorum í fyrralífi (að sögn Camillu)... ég er víst vampíra.. eða hálf vampíra þar sem að ég virðist fá oft hausverk þegar það er mikil sól og ég er ekki með sólgleraugu. Já, aðeins hálf þar sem að ef ég væri alvöru vampíra að þá mundi ég ekki bara fá hausverk, nei, ég mundi leisast upp.... já ég á spes vini...

Guðrún er súkkulaðibita ís því að hún er ástfanginn af ís og það fyrsta sem kemur út úr henni á morgnana þegar hún vaknar er: mig langar svo í ís stelpur...

og Camilla með strippara... ekki spyrja mig, hún ákvað þetta sjálf

Já það er langt síðan ég bloggaði síðast (fyrirgefðu elsku Sigurdís)... ég fékk formlega kvörtun í kommentin um bloggleysið hjá mér þannig að um leið og ég sá það ákvað ég að gera eitthvað í málunum!

Það er margt búið að ske! mörg partý búin að vera og mikið fjör! ég get ekki nefnt neitt minnisstætt eins og stendur fyrir utan páskana í köben með fjölskyldunni (fyrir utan Reyni brósa sem er formlega orðin ömurlegur fyrir að vilja frekar fara í jeppaferð heldur en að hitta krúttið hana mig!!) Það var huggulegt að fá mömmu pabba og hjört í heimsókn :) Röltum um stóran part af köben á aðeins einum degi... hafið þið nokkurn tíman farið í 5 klukkutíma "við ætlum rétt að skreppa út í smá göngurtúr" maraþon? ekki?? nei það hef ég!!! Allt til að finna þessa fjandans Íslandsbryggju! (sem ég fann núna síðustu helgi þegar ég var í köben aftur.. sendi þér myndir seinna pabbi). Eftir þennan 5 klukkutíma "við ætlum rétt að skreppa ´tu í smá göngutúr" maraþon að þá vorum foreldrar mínir aumir í mjöðmunum og skakklöppuðust restina af ferðinni!! En þetta var samt gaman:) Alltaf gott að hafa foreldrasína með sér til að nöldra smávegis í sér! ef þeir nöldra aldrei þá kann maður aldrei að meta að "sakna þeirra" hahahaha nei djók! þetta komment var bara látið flakka út af þeirri einu ástæðu að ég veit að faðir minn les þetta:) Ég elska ykkur! hehe

Heyrðu já.. á meðan ég var í köben að þá skerðist eftirfarandi í hverfinu sem við vorum í : einhver skaut af byssu, heyrðum sprengingu, klesst á bíl fyrir utan húsið, stolið bíl fyrir utan húsið og fylliraftar á ferð:) Efling á gott hús í góðu hverfi þarna úti!;)

En allt í allt var gott að knúsa mömmu og pabba og hjört aftur:) Var svo hamingjusöm að ég knúsaði hjört má meira að segja góða nótt! sem e´g hef ekki gert í ár og aldir! hehe (btw hjörtur, ÉG HRÝT EKKI!! Mótmæli þessu harðlega). Ætlaði sko ekkert að fara að væla á flugvellinum! en nei svo þurfti hann elsku pabbi að rétta mér tissjú til að reyna að vera fyndin! og hvað gerðist þá?? ég afsjálfsögðu byrjaði að skæla!! já ég kenni þér um pabbi!! skemmdi maskaran minn og alles :cry: ;)

Síðastliðnu helgi var ég svo aftur í köben! í þetta sinn var það skólaleiðangur með Jesper kennara! Það var bara ég, Guðrún og Camilla sem fórum með þar sem að hinar stelpurnar í bekknum voru annarsstaðar. En þetta var snilldar ferð!! fórum til Cristianiu á föstudeginum og svo á þjóðminnjasafn dana:) Það var gaman! og svo var það kvöldmatur og svo frí! við skelltum okkur á djammið og hittum þessa líku svakalega sætu og skemmtilegu breta þarna:) Þeir heita eftirfarandi: Nick, Martin, Mark, Adam og svo var einn finnskur gaur með í þessu sem ég man hreinlega ekki hvað heitir þar sem að hann var með svo skrítið nafn :) Við skemmtum okkur alveg fram á rauða nótt og höfum ákveðið að halda sambandi við þá :) (msn virkar fínt).
Á laugardeginum fórum við svo í tivolí!! óóójá! algjör snilld:) rosa gaman! Eftir tivolí skunduðum við niður á Ny havn og fengum okkur öllara í steikjandi hitanum!! það var yndislegt:)

                                              bretar

Svo er veðrir búið að vera svo fáránlega yndislegt hérna að það er alveg bara út í hött!! rúmlega 20 stiga hiti hefur kostað það að ég er með rautt nef og brenndar axlir en restinn er brún! hehe:) búin að fá smá lit! lá í sólbaði í dag í rúmlega 20 stiga hita:) niðrá strönd í bikiní að drekka bjór! ef það er ekki lúxus að þá veit ég ekki hvað!!

Planið er að vera brún og sæt fyrir spán og verða síðan ennþá brúnni þegar ég kem heim!!:D

Myndir koma um leið og ég nenni að taka laptoppinn inná tölvustofu! og tengja hann við netið:) er bara heldur löt sjáiði til! og nóg annað að gera en að hanga á netinu:)

Veriði sæl elsku krútt:)

Ástarkveðjur, Berglind


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 20:35:50 / Berglind

Anaconda Squeeze

Já þið ykkar sem hafa séð Nacho Libre fatta þetta :)

 

En já... það sem á daga mína hefur drifið.. er ... hmm veit ekki alveg hvort ég eigi að fara að segja það allt saman hérna á síðunni.... eeeeen... allaveganna... síðasta þriðjudag ákváðum við að hafa partý í tilefni þess að við kláruðum að senda háskóla umsóknirnar þá.

Þannig að Pólverjarnir og Ungverjarnir ákváðu að bjóða mér upp í vodka skot... já.. ég hefði betur átt að þyggja bjórinn! Það er greinilegt að sterkt áfengi fer ekkert svo hræðilega vel í mína.. þar sem að kvöldið fór eitthvað á þessa leið:

Ég sagði öllum að ég elskaði þá endalaust mikið (meira að segja þær manneskjur sem ég þoli ekki).. gerði tilraun til að kenna nepölunum að dansa... (heppnaðist ekki vel þar sem að ég var heldur völlt sjálf)... og ákvað að taka smá sundsprett í jökulköldum sjónum kl 5 um morguninn.... og svo annað sem ég ætla ekki að fara útí.

Já.. einhverjum snilling datt það í hug að það væri góð hugmynd að taka smá dífu í sjónum.. og sá snillingur var ég.. ég stekk upp í herbergi hoppa í bikiní-ið og hleyp út á strönd (sem er við hliðiná skólanum) og bara sting mér útí! vægast sagt má segja að þetta hafi verið heldur köld dífa.. en strákarnir voru sko þokkalega hrifnir og byrjuðu að kalla mig alvöru viking! þar sem að ég er víst enginn aumingji og þrátt fyrir að hafa stungið mér oní sjóinn þegar hann var við frostmark að þá ofkældist ég ekki og er alls ekki veik! hehe þannig að þá vitiðið það!

ég er hinn eini sanni víkingur... samkvæmt dönunum!

Heyrðu svo var keila á fimmtudaginn og þá skelltum við okkur 20 saman í keilu! og fengum okkur það sem átti að vera nokkrir öllarar... en það endaði þannig að allir voru piss fullir! allir (eða næstum) kysstu alla og nokkur pör mynduðust í kjölfarið! og nei ég er ekki ein þeirra!! Ég var kannski smávegis ölvuð en var ekki að gera neinn skandal! :)

Við komum heim kl hálf 5 um morguninn.. og vorum heldur þreytt í tímum á föstudaginn!

Svo datt einhverjum snilling í hug að skella sér aftur á djammið á föstudaginn.. og það var hann Tim! já og ég skellti mér með! þá fórum við á karókí bar og fleira skemmtilegt... en einu mistökin sem við gerðum var að taka svíana með okkur! Simon og Andreas! ekki misskilja mig, þeir eru yndælir... edrú! þegar þeir eru fullir.. NOT SO MUCH! Greyið tim eyddi helmingnum af kvöldinu að redda mér og Camillu frá Andreas þar sem að hann virtist ekki skilja nei!!

Á laugardaginn að þá var St. Patrick's day! Þá ríkti gleði í konungsríki Haraldar Heiðars! ó já! vöknuðum graut þunn í hádeginu og vorum komin á írska pöbbin í bænum kl 13:00 og þá var byrjað!

Ég stakk af uppúr 5 þar sem að ég þurfti að vaska upp eftir kvöldmatin í skólanum en mætti síðan aftur galvösk á svæðið kl 9... þá var halli og félagar ansi hressir enda búnir að sitja við drykkju ALLAN daginn! þetta var rosalegt! þannig að við drösluðum greyjunum heim uppúr 11 þar sem að þolið var á þrotum!

Sunnudagurinn fór svo í það að gera sem minnst þar sem að allir voru dauðþreyttir eftir allt of mikla skemmtun undanfarna daga!

En já.. hér hafiðið það!

þar til næst;) snakkes


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 16:29:07 / Berglind

Albúm

Hæhæ allir :)

Nenni ekki að blogga núna, geri það seinna í dag eða á morgun! :)

En það eru komin 3 ný albúm ef þið viljið skoða :)

 

Hilsen,

Berglind


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 22:05:02 / Linda

Tíminn líður..........

 

Jæja, það er sko langt síðan maður bloggaði seinast... en það er líka bara ekki buinn að vera tími í að blogga uppá síðkastið!! Alla þessa viku höfum við sölumennirnir í Nóa sett upp páskaeggin í Bónus á kvöldin, þannig að það er nóg vinna í því ;)

Svo er aðeins 3 dagar þangað til að ég fer út til múttu í Olando ;) jebbs smá vinnuferð með henni ;) Hitti Sunnu og Dóra strax þegar ég lendi því þau fara daginn eftir ;) I call you Sunna 8)

Fór seinustu helgi á Reunionið hjá gaggó mos ´86 og það var mjög gaman en því miður þurfti ég að fara snemma heim út af helv.. hestaofnæminu!!!! vá hvað ég var pirruð, ætlaði að taka massíft á því....!!!

Hmm, svo er vinna á morgun. Borða á Friday´s um kvöldið og skella sér á Norbit! held að hún sé gegguð ;)

Úfff sexyyyy beast ;) grrrr
kv,
Linda ;)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 10:33:13 / Berglind

Afrek Helgarinnar

Helgin liðin og hvað hefur gerst?

 

Ekki mikið skal ég ykkur segja!

Kláraði háskóla umsóknina...

Skellti mér á föstudaginn út að borða með Halla, Finn, Soniu, Dömlu og Gabor :) Sem var bara kósý! fórum og fengum okkur Pizzu á veitingastað niðrí bæ, spjölluðum og höfðum gaman:)

Eftir Pizzuna fórum við á Ryan's bar! sem er hreinlega bara besti bar veraldar :);) Fengum okkur bjór þar og höfðum það ennþá meira kósý! þangað til að Finn og Halli fóru að verða stressaðir um að ná strætónum tilbaka í skólan! og þá þurftum við að þamba bjórinn til að klára!! fyrr má nú aldeilis vera sko! nýbúin að éta heila pizzu sjálf og þambastóran bjór! og svo kemur maður út og þarf að hlaupa í strætóin! já ég hef verið ferskari!

Ég var frekar bílveik á leiðinni heim:S ekki spennandi :|

Svo þegar við komum heim að þá er bara skellt sér strax niður á barinn og byrjað að drekka! Það gekk heldur hægt hjá mér, fram að miðnætti en svo fór maginn að braggast þannig að þá var hægt að drekka að vild ;) hehe

Það voru rooosalega margir í partýinu! ekki þessi venjulegi partýhópur heldur margir fleiri :) vorum allaveganna 20 þarna niðri í staðinn fyrir 7:) sem var náttlega bara snilld! allir dansandi og hlægjandi, bara frábært:) Ég tók nokkrar myndir, en þær voru rosalega fáar, veit ekki hvort ég nenni að skella þeim inn strax:) kemur í ljós;)

Partýið endaði þannig að allir voru farnir að sofa nema ég, james, finn, halli, sonia, damla, gabor, sit og sidse. Sit og sidse voru að dansa ansi þétt saman, damla og gabor voru að kyssast, halli og sonia voru að kyssast og þarna sat ég á milli James og Finn, james við það að drepast, hafði hendina í kring um mig og sagði í sífellu á meðan hann kyssti mig á kynnina: I FUCKING LOVE YOU BERGLIND! og Finn hinummeginn við mig að reyna að snerta á mér brjóstin!!!

Já ég kýldi Finn í annað skiptið núna á 3 vikum! tognaði ekki í þetta skiptið sem var gott þar sem að mér finnst ekki gaman að togna:) Eftir þetta að þá fór ég bara í háttinn! ekki alveg að fýla þessar aðstæður! En ég hinsvegar fyrirgaf James þar sem að hann hefur barasta aldrei orðið svona fullur og var, fyrir utan það, ekki að meina neitt illt!;)

Laugardagurinn fór svo bara í kósýheit og ofát! ég át 2 snakk poka og 2 stóra haribo poka all by myself (eins og Celine Dion söng hérna forðum daga) ég horfði á heilar 4 bíó myndir fram að kvöldmat! ef það er ekki spenna að þá veit ég ekki hvað! ;) hehe

Afrek helgarinnar

  • Kláraði háskóla umsóknina
  • út að borða
  • fór í partý
  • kýldi finn
  • horfði á 4 bíómyndir í röð
  • þyngdist um 5 kíló með nammi áti
  • vaknaði of snemma á sunnudegi og leiddist....

Þar til næst;)

Snakkes;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 11:12:05 / Berglind

Hinn eini og sanni snillingur veraldar!

:lol:

Ég er svo stolt af sjálfri mér akkurat núna að ég gæti hreinlega bara sprungið!

Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki mikið fyrir að taka áhættur og vera villt og gera eitthvað til að ögra sjálfri mér. Sem sagt er ég hrikalega óvillt og algjör hræðslupúki!

Ég hef til dæmis allt mitt líf verið skít hrædd við hæðir! það er að segja, mjög loft hrædd! panikka alveg ef ég fer hærra en 2 metra :S finnst það ekki sniðugt!

Hérna í Danmörku hef ég ekki gert neitt nema að ögra sjálfri mér. Hvort sem það hefur falist í því að vera sjálfstæðari eða prófa nýja hluti! Núna hef ég farið í axarkast (og gat það), skotið af boga (og gat það), sofið undir berum himni í FEBRÚAR (og lifði), farið á skauta (án þess að detta) og klifrað (og náð upp á topp 2x).

Já ég fór að klifra á föstudaginn með exporer liðinu og entertainer stelpunum! ásamt henni yndislegu Gitte sem er íþrótta kennarinn okkar:) Ég fór með í klifrið með því hugarfari að ég ætlaði bara að horfa á, því að glætan að ég ætlaði að klifra upp einhver fjandans vegg hangandi í spotta! ég meina ég gæti náttlega dáið eða eitthvað;) En svo þegar ég er komin á svæðið er mér ýtt í beislið og sagt að drulla mér upp! og ég náttlega í smá sjokki ætlaði sko ekki að láta mig dreyma um það að ég væri að fara upp! en þökk sé henni Gitte og að hún sé aðeins þrjóskari en ég að þá endaði með því að ég fór! og ég komst alla leiðina upp!!! Ég treysti sjálfri mér og kallinum sem hélt mér! og þótt mig langaði ekkert að vera þarna uppi að þá leyfði ég þrjóskunni minni að taka völdin og píndi mig áfram!

Þvílíkur sigur! ég fór langt fram úr mínum eigin væntingum og adrenalínið sem fór í gegnum líkaman minn var geggjað!

Strákarnir voru með einhvern derring og fóru upp erfiðari vegg og sögðu síðan að það væri allt í lagi þótt við stelpurnar færum ekki upp, því að við værum afsjálfsögðu hvort eð er viðkvæmari!

Já ég ætlaði ekki að taka þessum staðhæfingum og stóð upp og byrjaði á veggnum! Ég var löngu búin á því í höndunum en fjandinn hafi það ég ætlaði ekki að láta strákana hafa rétt fyrir sér! Þannig að aftur var það hugurinn sem stjórnaði mér ekki líkamskrafturinn og ég fór alla leið og á betri tíma en strákarnir!

I AM WOMAN! HEAR ME ROAR!

Helvítis karlrembur;)

Svo endaði föstudagurinn á góðu partýi að vanda:) Og það var skemmt sér fram á rauða nótt!

Laugardagurinn var all rólegri! en þá fórum við á skauta:) Og þar sem að ég hef aldrei skautað áður að þá langaði mig eiginlega ekki að fara, en hugsaði samt með mér að ég yrði að breyta hugarfari mínu soldið og láta slag standa. þannig að ég fór! og viti menn! ég var ÖMURLEG á skautum! en ég skemmti mér best af öllum! sjaldan helgið eins mikið á svona stuttum tíma:) Ég datt ekki neitt, þannig að ég var samt betri en nepalarnir! hehe

Restin af deginum var svo bara tekin í rólegheitum, horft á American Idol um kvöldið og haft það notarlegt:)

Í dag (sunnudagur) eru svo nýjir nemendur að koma til skólans! þar á meðal 2 íslenskar stelpur:) Og af gefnu tilefni erum ég og Halli að fara að elda Íslenska kjötsúpu fyrir 70 manns! óóójá! Ég er nett stressuð þar sem að ég hef aldrei eldað það áður! hvað þá fyrir 70 manns! en ég ætla bara vinsamlegast að biðja hana móður mína um að hafa "auga" með mér! hringja í mig öðruhverju til þess að ath hvort ég sé nokkuð að kveikja í húsinu!:)

Jæja hérna eru myndir frá þessari helgi!;) enjoy!


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 19:54:02 / Berglind

Íkveikja og Axarkast

Halló!!

Jæja það sem á mína daga hefur drifið undanfarið er eftirfarandi:

Síðasta fimmtudag var ég í íþrótta tíma og fékk rosalega slæmt högg á höfuðið! Hélt ég hefði fengið heila hrysting og fleira skemmtilegt og fór á slysó en ekkert kom út úr því, en mátti samt ekki vera að djamma og hoppa um eins og vitleysingur í ske kyn eitthvað kæmi fram seinna. En það var allt í lagi með mig og ég er bara góð:)

Um helgina var svo afsjálfsögðu partý! nema ég var ekki að drekka, því mér var bannað það af læknisráði! go figure;) hehe! þar sem ég var edrú að þá hélt ég að þetta partý mundi vera ömurlegt! en svo varð það svona fjandi spennandi líka þegar að ákveðinn einstaklingur fór að tjá sig við mig um tilfinningar sínar til mín, og fór síðan í kjölfarið að reyna að káfa á mér! Segjum bara að Berglind reddaði sér úr þeim aðstæðum, með þeim aðferðum sem pabbi hennar kenndi henni;) og gat þá haldið áfram að skemmta sér;)

Ég endaði síðan uppí stofu með Rasmus og Bror að hlægja eins og ég veit ekki hvað! nema ég man bara ekki hvað var svona fyndið :) og ég var að drepast í hálsinum því ég hló svo mikið! Endaði svo á því að horfa á videó með Bror og fór að sofa kl hálf 5! ég og Bror vorum þau einu í húsinu sem vorum edrú þetta kvöld og við fórum seinast að sofa! :) hehe snilld

Heyrðu svo var það útileiga núna í gær! já ef þetta var ekki heimsins mesta snilld að þá veit ég ekki hvað!

Við vorum þarna 3 línur frá Snoghöj, Media Design, Explorer og Entertainer línan :) Við kepptum okkar á milli í axarkasti, skjóta örvum og alls konar tilfallandi þrautum! bara stuð:) Media Design vann en svona er það bara:) Ég kom sjálfri mér samt á óvart með hæfni minni í vikinga íþróttunum! ég var bara fjandi góð í axarkasti (sú eina sem hitti í miðjuna) og stóð mig vel í að skjóta örvum! en ég var því miður sú einasta í mínu liði sem hitti eitthvað! já ég veit að núna eru margir hissa! já ég var sú eina sem að hitti eitthvað!!! ég lýg þessu ekki!

Svo eftir þrautir dagsins sátumst við niður við eldinn og borðuðum bestu súpu aldarinnar! En eg held hún hafi bara bragðast svona vel því við vorum að deyja úr hungri og kulda! Svo hrúguðumst við í kringum eldinn og sögðum drauga sögur, elduðum brauð á priki, sögðum klámvísur, fengum reyk eytrun og kveiktum í okkur.

eða nei.. ég var víst sú eina sem kveikti í mér! Já ég sat þarna í kósý heitum að segja snilldar klámvísu (á íslensku reyndar.. stúlka ein stóð út í sjó með svuntu...) þegar að ég finn að me´r snögg hittnar á táslunum! svo byrjar fólk að æpa og benda á mig og það var ekki fyrr en að það var ýtt við mér og öskrað: SLÖKKTU Í SJÁLFRI ÞÉR FJANDINN HAFI ÞAÐ! að ég áttaði mig á því að það var ég sem fólk var að æpa yfir! hahahahaha Engar áhyggjur lesendur góðir! ég slapp ómeidd frá þessum hremmingum;) nema að buxurnar mínar hafa verið hamingjusamari! en þtta er allt í góðu;) mér hittnaði þó á táslunum!! :lol:

Svo sváfum við undirberum himni í lélegum svefnpokum og snjókomu! okkur til mikillar gleði og ánægju! Ég lýsi mig hér yfir sem þvílíku hörkutóli! ég komst i gegnum þetta án þess að nöldra of mikið! hehe ójá! allt að gerast!

 

Allaveganna, það eru komnar myndir frá Beerfest, Útileigunni og Edrú partýinu :) Enjoy!:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19